Kjútt!

Hrund systir sendi mér þennan boðskap. Ákvað að deila honum með ykkur.

Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður 
vel
 að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður 
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
 
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að. 
  

Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
 
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
 
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
 
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.
 

Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
 
faðma þennan morgun og allar hans rætur
 
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt 
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.
 


Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
 
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
 
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
 
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.



Höfundur
: Unnur Sólrún Bragadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá ljóðið mitt hér og mikill heiður.  Bestu kveðjur.

Unnur Sólrún

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband