Hún Ingibjörg....

...Jóhannsdóttir skólaliði var leynivinur minn í síðustu viku. Hún er sko fínn vinur, því eins og mig grunaði sendi hún eiginmanninn á miðvikudaginn til að moka hjá mér innkeyrsluna. Svo fékk ég fallegt blóm, gátu, indæl orð í minn garð og síðast en ekki síst hvítvín frá Chile. Það fannst mörgum fyndið Smile.  Því miður eru leynivinadagarnir á enda og ég reikna með að maðurinn hennar Ingibjargar hafií nógu að snúast í vinnunni sinni, svo við Siggi minn verðum að sjá um mokstur á lóðinni okkar með handaflinu. En það er nú svo sem góð líkamsrækt.

Leynivinadagarnir tókust sem sagt vel og ég veit ekki betur en allir hafi verið glaðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband