Á miðvikudaginn var fór ég næstum því í saumaklúbb!
Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að ég hef aldrei verið í saumklúbb og hef engan áhuga á því að ganga í slíkan klúbb. Hins vegar hitti ég fimm frábærar vinkonur mínar í sumarbústað uppí Ölfusi í tilefni af því að ein þeirra sem búsett er í Japan var á landinu. Þetta voru gellurnar í Reykjavíkurvinahópnum...sem ég kynntist á Kennóárunum. Engin þeirra er þó kennari!
Við áttum yndislega stund, borðuðum lax, drukkum hvítvín og töluðum ótæpilega...stelputal
Gistum í bústaðnum en mættum í vinnu morguninn eftir eins og ekkert hefði í skorist. Gaman, gaman.
Bloggvinir
Skemmtilegt lesefni
Tenglar
Heimasíður
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.