Bloggvinir og nýtt útlit

Ég var eitthvað orðin leið á gamla útliti síðunnar og set hér nýtt inn til reynslu.

Eins og glöggir lesendur taka eftir er hér líka listi yfir bloggvini. Þetta er allt öndvegisfólk sem hefur óskað eftir að gerast bloggvinir mínir og mér er sönn ánægja að tengjast. Nú eru fleiri sem ég vildi gjarnan setja hér inn....en kann ekki. Nenni samt ekki að hafa lista með 100 myndum eins og sumir gera en gaman að hafa þá sem ég les oft og sem kíkja hingað.

HJÁLP!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Farðu í hjálpið í stjórnborðinu hjá þér,- þar eru allar upplýsingar.  En í stuttu máli þá a) þarftu að vera innskráð, b) fara inn á síðu sem þú vilt að verði vinur þinn c) klikka í stikuna efst uppi til hægri ( já til hægri ) og þar geturu klikkað á bæta við vin......þá fær hann tilkynningu í tölvupósti að þú viljir vera vinur hans og ef hann samþykkir þá fer vinurinn sjálfkrafa á síðuna þína,- og þú á hans.....

Gangi þér vel,- gæskan !!

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 23.6.2007 kl. 12:07

2 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Takk Helga!

Sigþrúður Harðardóttir, 24.6.2007 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband