...en lítil í mannkynssögunni.
Auður Magnea stóð fyrir framan spegilinn á laugardagskvöldið, spýtti út úr sér snuðinu (sem hefur verið henni sem vindlingur stórreykingamanni frá fæðingu) og sagði:,, É hætt me duddu". Og þar með var það ákveðið. Pínu löngunar gætti fyrstu tvær næturnar en á þriðja degi varð úr að losa sig endanlega við allar snuddurnar úr húsi. Hún tók líka sjálf ákvörðun um það hvað skyldi gert við þær...henda þeim í sjóinn og gefa hákörlum, fiskum og selum. Ekki beint umhverfisvænt en ég vona að okkur fyrirgefist í nafni góðs málstaðar. Suðurvararbryggjan varð fyrir valinu og meðfylgjandi eru myndir frá athöfninni
Nú er barnið orðið stórt. Ekkert smábarn á heimilinu lengur.
En hvaðan hefur barnið þennan sjálfstæða vilja og staðfestu?
Bloggvinir
Skemmtilegt lesefni
Tenglar
Heimasíður
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lukkulegur árangur hjá dömunni !! Get barasta ekki ímyndað mér hvaðan hún hefur þennan sjálfstæða vilja og staðfestu
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 14.5.2008 kl. 18:15
Frábært hjá henni að ákveða þetta sjálf - það er best ....
Karen Rós mín kom snuddulaus úr sveitinni hjá pabba sínum um daginn og er núna bara á munninum....
Hlakka til að koma í Þorlakshöfn um verslunarmannahelgina...
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 16.5.2008 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.