18 ár...og oftast gaman!

Við hjónin eigum 18 ára brúðkaupsafmæi í dag. Þessi 18 ár hafa verið ótrúlega viðburðarík enda höfum á þeim tíma eignast það sem við eigum bæði af veraldlegum eigum og svo auðvitða börnin okkar þrjú. Samt man ég hann eins og hann hefði verið í gær brúðkaupsdagurinn okkar.

11.ágúst 1990. Skálholtsdómkirkja. 100 vinir og ættingjar á staðnum. 25 stiga hiti og sól (hitabylgja gekk yfir landið). Skálað í kampavíni úti í sólinni. Kökuhlaðborð í skólanum. Yndislegur söngur í kirkjunni (Guðlaug vinkona, Óli og Sigurbjörg). Fallegar ræður og hlý orð í veislunni. Tvær fullar rútur af Japönum að taka myndir af þessu risastóra fólki í blíðunni. Allt eins og best verður á kosið.

Og það endist enn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Til lukku,- hlakka til að koma í silfurbrúðkaupið ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 13.8.2008 kl. 00:33

2 identicon

Man líka vel eftir brúðkaupsdeginum þínum - einmitt þessu yndislega veðri og hvað þetta var velheppnað í alla stadi. Man samt best að það var á þessum degi sem ég sagði þér að ég væri ófrísk af henni Jóhönnu Herdísi - minnir samt að þú hafir getið þér þess til - ég hlýt að hafa verið eitthvað óskaplega vandræðaleg yfir þessu,

Hanna Petra (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 18:23

3 identicon

Þorði nú ekki annað en að skrifa fullt nafn hér. Annars gætir þú haldið að ég væri söngkonan;-) Þú heyrir náttúrulega ekki í mér ef svo væri færi það ekkert á milli mála að svo er ekki. Innilegar hamingjuóskir með daginn bæði tvö. Þetta er nú meiri eljan. Og þó. Þegar ég hugsa um það þá er mín reynsla sú að svona sambúðarbrölt verður bara betra með árunum, þægilegra og færri árekstrar. Ljómandi gott alveg

Guðlaug Einarsd. (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 23:55

4 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Til hamingju Sissa mín já og líka kveðjur til Sigga. Megið þið eiga mörg góð ár saman enn.

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 14.8.2008 kl. 17:58

5 Smámynd: Guðrún S Sigurðardóttir

Til lukku með árin átján og megið þið eiga mörg önnur átján ár saman.

Guðrún S Sigurðardóttir, 17.8.2008 kl. 23:40

6 identicon

Til hamingju kæru vinir,

Hver man ekki eftir þessum degi.  Skemmtilegur var hann og yndislegur. 

Kossar og knús til ykkar allra.

Kveðja,

Jóhanna

Jóhanna Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 20.8.2008 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband